Lífið

Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Magnús Kjartan Eyjólfsson kom dætrum sínum og ballgestum á óvart og söng með Stuðlabandinu í fyrsta sinn frá greiningunni
Magnús Kjartan Eyjólfsson kom dætrum sínum og ballgestum á óvart og söng með Stuðlabandinu í fyrsta sinn frá greiningunni Vísir/Samsett

Magnús Kjartan Eyjólfsson, aðalsöngvari Stuðlabandsins, steig á stokk í gær í fyrsta sinn frá því að hann greindist með hvítblæði í febrúar á þessu ári. Stuðlabandið spilaði á Samfés og Magnús söng með þeim tvö lög. Hann segir stundina hafa verið einstaka sér í lagi vegna þess að hann á tvær dætur sem voru á ballinu.

„Ég náði þarna tveimur lögum. Þetta er í fyrsta skipti frá því að ég greindist með hvítblæði sem ég spila fyrir fólk. Lítið skref í ákveðinni endurkomu,“ segir hann í samtali við fréttastofu.

Tvær dætur Magnúsar voru gestir á ballinu og segir hann að þær hafi ekki vitað af því að faðir þeirra myndi koma fram. Magnús segir kvöldið hafa verið stórskemmtileg og að það sé gott að vita að hann geti enn sungið. Þetta hafi verið takmark alveg frá því að hann komst að því að hljómsveitin hefði verið ráðin til að spila á ballinu.

„Þetta var tilfinningaþrungin stund að horfa ofan af sviðinu og sjá framan í stelpurnar gráta úti í sal. Það er gaman þegar maður nær að græta fólk á góðan hátt,“ segir Magnús um gærkvöldið.

Sigríður Jónsdóttir eiginkona Magnúsar birti færslu á síðu sína á Facebook þar sem hún fagnaði kvöldinu.

„Stóru sigrarnir eru svo geggjaðir og þetta kvöld var eitt af þeim. Ég tryllist úr stolti!“ segir hún.

„Með tvær af dætrum sínum í salnum í Laugardalshöll, var eðlilega eftirvæntingin mikil, og þó svo að þetta sé búið að vera takmarkið síðustu vikur að þá hefur heilsan ekkert verið alltaf góð í lyfjagjöfinni sem hann er í, og því ekkert öruggt fyrr en bara í kvöld þegar hann steig inn á svið og maður minn. Hann átti þetta svið,“ skrifar Sigríður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×